Stjörnur fyrir ofan félagsmerki á búningum
Á ársþingi KSÍ í febrúar var samþykkt að heimila félögum í Landsbankadeildum karla og kvenna að setja stjörnur fyrir ofan félagsmerki á búningi, og miðast fjöldi stjarna þá við fjölda Íslandsmeistaratitila félagsins - ein stjarna fyrir hverja fimm Íslandsmeistaratitla.
Í kjölfar samþykktarinnar er eftirtöldum félögum heimilt að setja stjörnu(r) beint fyrir ofan félagsmerki á keppnistreyju. Hæð hverrar stjörnu skal ekki vera meiri en 2 cm.
Félög sem geta skreytt búning sinn með stjörnu/stjörnum eru:
Í karlaflokki
KR - 4
Valur - 3
Fram - 3
ÍA - 3
Víkingur R. - 1
Í kvennaflokki
Breiðablik - 3
KR - 1
Valur - 1