• mið. 08. mar. 2006
  • Landslið

U21 karla - samið um leikdaga gegn Andorra

Knattspyrnusamband Andorra
andorra

Samið hefur verið um leikdaga við Andorra í forkeppni Evrópumóts U21 landsliða.  Leikið verður í Andorra 3. maí og á Íslandi 1. júní.

Sigurvegarinn í viðureigninni kemst í þriggja liða riðil með Ítölum og Austurríkismönnum þar sem eitt lið kemst áfram í umspil um sæti í úrslitakeppninni í Hollandi sumarið 2007.