Hefur þú brennandi áhuga á knattspyrnu?
KSÍ óskar að ráða starfsmann á skrifstofu sambandsins frá og með 1. apríl næstkomandi. Meginverkefnin eru störf sem tengjast mótamálum, ásamt því að hafa umsjón með vef KSÍ.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gott vald á íslensku, ensku og hvers kyns tölvuvinnslu. Einnig er nauðsynlegt að umsækjandi hafi góða almenna þekkingu á knattspyrnu.
Upplýsingar veitir mótastjóri í síma 510 2900. Umsóknum skal skilað með tölvupósti til birkir@ksi.is, eigi síðar en 20. mars.