Jörundur tilkynnir hópinn gegn Englandi
Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, hefur tilkynnt íslenska hópinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Englendingum í Norwich 9. mars næstkomandi. Harpa Þorsteinsdóttir úr Stjörnunni er eini nýliðinn í hópnum.
Ellefu leikmenn koma frá Breiðablik eða Val, en KR og Stjarnan eiga einnig fulltrúa í hópnum, auk þess sem fjórir leikmenn eru á mála hjá erlendum liðum - þær Ásthildur Helgadóttir, Katrín Jónsdóttir, Dóra Stefánsdóttir og Erla Steina Arnardóttir.