Önnur æfingahelgi A kvenna í febrúar
A landslið kvenna kemur saman til æfinga um næstu helgi, en um er að ræða síðari æfingahelgina af tveimur í febrúar.
Liðið mætir Englendingum í vináttulandsleik á Carrow Road í Norwich 9. mars næstkomandi og leikur vináttulandsleik gegn Hollandi mánuði síðar.
Leikinn verður æfingaleikur gegn Breiðabliki í Fífunni í Kópavogi á laugardag og síðan verður æft á Stjörnuvelli í Garðabæ á sunnudag.