Fundað um niðurröðun leikja í undankeppni EM 2008
Þriðjudaginn 14. febrúar funda forystumenn og landsliðsþjálfarar þjóðanna sjö sem eru í F-riðli í undankeppni EM 2008. Í F-riðli eru, auk Íslands, Svíþjóð, Spánn, Danmörk, Lettland, Norður-Írland og Liechtenstein.
Á fundinum, sem fram fer í Kaupmannahöfn, verður leikjaniðurröðun riðilsins ákveðin og verður hún birt hér á vefnum um leið og hún liggur fyrir. Fulltrúar KSÍ á fundinum eru Eggert Magnússon formaður, Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri og Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari.