Æfingar A-landsliðs kvenna í febrúar
Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur boðað 26 leikmenn á æfingar liðsins í febrúar. Liðið mætir Englendingum í vináttulandsleik á Carrow Road í Norwich 9. mars næstomandi.
Enska landsliðið lék nýlega tvo leiki við Svíþjóð. Báðir leikirnir fóru fram á Kýpur og báðum lauk þeim með jafntefli, 1-1 og 0-0. Englendingar líta á leikinn gegn Íslendingum sem lokaundurbúning liðsins fyrir leikinn gegn Frökkum í undankeppni HM 26. mars næstkomandi.
Æft verður um næstu tvær helgar og þá fyrri, 18. og 19. febrúar, fara æfingarnar fram á Stjörnuvelli. Tilkynnt verður síðar um staðsetningu æfinganna 25. og 26. febrúar.