Á Futsal ráðstefnu UEFA í Madrid
Birkir Sveinsson mótastjóri KSÍ og Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ sækja í vikunni ráðstefnu UEFA um Futsal - innanhússknattspyrnu í Madrid á Spáni.
Futsal verður nú sífellt vinsælli um heim allan og á ársþingi KSÍ, sem fram fór á Hótel Loftleiðum 11. febrúar, var samþykkt tillaga um að fela stjórn KSÍ að meta hvort taka skuli upp breyttar leikreglur í innanhússknattspyrnu, það er að taka í gildi alþjóðlegar leikreglur FIFA fyrir keppni í Futsal.
Á mynd:
Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ (vinstra megin), og Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri KSÍ á ársþinginu um síðustu helgi.