Afgreiðsla tillagna á 60. ársþingi KSÍ
Hér að neðan má fylgjast með afgreiðslu tillagna og annarra mála sem liggja fyrir 60. ársþingi KSÍ, sem haldið er á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Upplýsingarnar verða uppfærðar reglulega á meðan á þinginu stendur.
Þingið hefst kl. 11:00 og áætlað er að því ljúki um kl. 16:00.
Hægrismellið og veljið "Refresh" til að vera viss um að sjá nýjustu uppfærslur.
Tillögur og önnur mál sem liggja fyrir þinginu
Tillaga til ályktunar
- Fjölgun í liðsstjórn í meistaraflokki
- Tillagan var dregin til baka
Tillaga um breytingu á reglugerð KSÍ um knattspyrnumót
- Fjöldi varamanna og í liðsstjórn
- Tillagan var samþykkt, með breytingu
Niðurstöður milliþinganefndar
- um framtíðarstefnu í gerð og hönnun leikvalla á Íslandi
- Skýrslan lögð fram
Tillaga um breytingu á reglugerð KSÍ um knattspyrnumót
- Fjölgun liða í 1. deild karla
- Tillagan var dregin til baka
Tillaga um breytingu á reglugerð KSÍ um knattspyrnumót
- Fjölgun í 1. deild karla
- Tillagan var samþykkt
Tillaga til ályktunar
- Varalið í meistaraflokki karla
- Tillagan var dregin til baka
Tillaga um breytingu á reglugerð KSÍ um knattspyrnumót
- Fjölgun liða í A- og B-deildum 2. og 3. flokks karla
- Tillagan var felld
Tillaga frá milliþinganefnd KSÍ
- sem fylgist með framkvæmd reglugerða KSÍ um félagaskipti leikmanna og samninga og stöðu félaga og leikmanna
- Tillagan var samþykkt
Tillaga um breytingu á reglugerð KSÍ
- um deildarbikarkeppni karla
- Tillagan var felld
Tillaga um breytingu á reglugerð
- um búnað knattspyrnuliða
- Tillagan var samþykkt
Tillaga til ályktunar
- Futsal (innanhússknattspyrna)
- Tillagan var samþykkt
Tillaga til ályktunar
- Landsliðsþjálfarar
- Tillagan var felld
Greinargerð frá milliþinganefnd
- um endurskoðun á lögum og reglugerðum KSÍ
- Greinargerðin lögð fram
Ársþing samþykkti eftirfarandi ályktun:
"Ársþing KSÍ mótmælir harðlega þeim vinnubrögðum stjórnar ÍSÍ að sniðganga knattspyrnuhreyfinguna við úthlutun á sérstöku fjárframlagi menntamála ráðherra til sérsambanda."