Unglingadómaranámskeið hefst 17. febrúar
Fyrsta unglingadómaranámskeið ársins hefst 17. febrúar næstkomandi og er að mestu leyti um heimanám að ræða. Þátttakendur sækja námsefnið hingað á vefinn og fá send verkefni með tölvupósti þrjá föstudaga í röð (fyrst 17. febrúar), en námskeiðinu lýkur síðan með prófi laugardaginn 11. mars.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 16. febrúar.
Námskeiðið er fyrir alla sem verða 16 ára á almanaksárinu (fædd 1990) og eldri.
Fyrirkomulag |
Þátttakendur sækja námsefnið hingað á vefinn og fá verkefni send í tölvupósti í þrennu lagi, 17/02, 24/02 og 03/03. Námskeiðinu lýkur síðan með prófi 11/03. |
Próf |
Prófið sjálft verður ekki þreytt í gegnum netið, heldur fer próf fram í Reykjavík og víðar ef þörf krefur. |
Þátttakendur |
Námskeiðið er fyrir alla sem verða 16 ára á almanaksárinu (fædd 1990) og eldri. |
Skráning |
Hægt er að skrá sig með tölvupósti eða í síma 510-2900 í síðasta lagi 16/02. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram: Nafn, heimilisfang, kennitala, sími, GSM, netfang, félag. |
Þátttökugjald |
kr. 3.000 |
Greiðsla |
Greiða skal námskeiðsgjaldið inn á reikning 0101-26-700400 í Landsbankanum fyrir 16/02 og senda staðfestingu til KSÍ (Kennitala KSÍ er 700169-3679). |
Vinsamlegast vandið skráningar!
Félög eru vinsamlegast beðin um að vanda skráningar því mikið hefur verið um að á námskeiðið hafi verið skráðir nemendur sem ætla sér aldrei að ljúka námskeiðinu. Þetta hefur haft í för með sér mikla óþarfa vinnu fyrir skrifstofu KSÍ.
Þrjú námskeið á ári hverju
Þrjú unglingadómaranámskeið eru haldin á ári hverju, eitt í febrúar/mars, annað að vori til og það þriðja að hausti. Vornámskeiðið í ár hefst 28. apríl.