Ársþing KSÍ á Hótel Loftleiðum á laugardag
Eins og kunnugt er fer 60. ársþing KSÍ fram á Hótel Loftleiðum næstkomandi laugardag, 11. febrúar. Þingið hefst kl. 11:00 og áætlað er að því ljúki kl. 16:00.
Notendum ksi.is er bent á að ýmsar upplýsingar tengdar þinginu er að finna hér á vefnum, undir "Lög og reglugerðir" hér uppi til hægri.
Þá verður settur upp tengill á forsíðu vefsins sem smella má á til að fylgjast með afgreiðslu tillagna, kosninga og annarra mála.