Leikið við Trinidad og Tobago 28. febrúar
Knattspyrnusambandið hefur samið við knattspyrnusamband Trinidad og Tobago um að leika vináttulandsleik á Loftus Road í Lundúnum þriðjudaginn 28. febrúar.
Þetta verður fyrsti landsleikur Íslands undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar landsliðsþjálfara. Sem kunnugt er leikur Trinidad og Tobago í úrslitakeppni HM í sumar þar sem þeir eru í riðli með Englendingum, Svíum og Paraguaymönnum.