• þri. 03. jan. 2006
  • Leyfiskerfi

Keflvíkingar og Fylkismenn fyrstir til að skila

Áhorfendur á Fylkisvelli
fylkisahorfendur

Leyfisfulltrúar Keflavíkur og Fylkis voru fyrstir til að skila gögnum með leyfisumsóknum sinna félaga fyrir keppnistímabilið 2006. Í leyfiskerfi KSÍ er kveðið á um að gögnum, öðrum en fjárhagslegum beri að skila í síðasta lagi 15. janúar, en fjárhagslegum gögnum beri að skila eigi síðar en 15. febrúar.

Gögnin sem skilað er fyrir 15. janúar innihalda upplýsingar um þætti sem snúa að mannvirkjum og aðstöðu (m.a. fyrir áhorfendur, fjölmiðla og iðkendur), upplýsingar um þjálfara/þjálfun og aðra starfsmenn, lagaleg atriði og ýmsar staðfestingar.