Kvennalandsliðið í 19. sæti FIFA-listans
Ísland er í 19. sæti á styrkleikalista FIFA fyrir kvennalandslið í lok ársins og fellur um tvö sæti frá því listinn var síðast gefinn út - Úkraína og Holland fóru upp fyrir íslenska liðið. Þýskaland er sem fyrr í efsta sæti og litlar breytingar eru við topp listans.