Úrtaksæfingar U16 karla 10. og 11. desember
Vel á fjórða tug leikmanna hafa verið boðaðir á úrtaksæfingar U16 landsliðs karla (leikmenn fæddir 1991 og síðar) um komandi helgi. Þetta er fyrsti hópurinn af þremur sem verða boðaðir á æfingar liðsins í vetur.
Næsti hópur æfir á Akureyri 21. og 22. janúar (leikmenn af Norður- og Austurlandi) og þriðji hópurinn æfir í mars í Reykjaneshöll og Egilshöll.
Þjálfari U16 karla er Freyr Sverrisson.