Úrtaksæfingar U17 karla fyrstu helgina í desember
Úrtaksæfingar fyrir U17 landslið karla fara fram í Fífunni í Kópavogi og Egilshöll í Reykjavík fyrstu helgina í desember. Æft verður undir stjórn Lúkasar Kostic, þjálfara U17 landsliðs karla.
Alls hafa vel á fjórða tug leikmanna verið boðaðir til æfinga að þessu sinni.
(Athugið að tími æfinganna hefur breyst frá því hópurinn var fyrst tilkynntur)