Úrtaksæfingar U19 kvenna 19. og 20. nóvember
Dagana 19. og 20. nóvember næstkomandi fara fram úrtaksæfingar fyrir U19 landslið kvenna á Stjörnuvelli í Garðabæ og í Egilshöll í Reykjavík. Æfingarnar fara fram undir stjórn Ólafs Þórs Guðbjörnssonar, þjálfara liðsins.
Alls hafa 24 leikmenn frá 11 félögum verið boðaðir til æfinga að þessu sinni. Breiðablik á flesta fulltrúa í æfingahópnum, eða 8, og Fjölnir á 4 fulltrúa.