Ísland í 92. sæti á FIFA-listanum
Ísland er í 92. sæti á styrkleikalista FIFA fyrir karlalandslið, sem gefinn var út í síðustu viku, og stendur því í stað frá því listinn var síðast gefinn út.
Brasilíumenn eru efstir sem fyrr og Hollendingar eru áfram í öðru sæti. Frakkar komast upp fyrir Mexíkó í 5. sætið og Tékkar upp fyrir Argentínumenn í 3. sætið.