Þrjár breytingar fyrir leikinn gegn Svíþjóð
Þrjár breytingar hafa verið gerðar á byrjunarliði Íslands frá vináttulandsleiknum við Pólverja á föstudag fyrir leikinn gegn Svíum í undankeppni HM 2006 á Råsunda í kvöld.
Árni Gautur Arason kemur inn í markið fyrir Kristján Finnbogason, Gunnar Heiðar Þorvaldsson kemur inn í sóknartengiliðinn fyrir Gylfa Einarsson og Heiðar Helguson verður í fremstu víglínu í stað Hannesar Þ. Sigurðssonar.
Leikurinn hefst kl. 17:30 að íslenskum tíma, en útsending á Sýn hefst hálftíma fyrr.
Byrjunarlið Íslands
Markvörður: Árni Gautur Arason.
Hægri bakvörður: Kristján Örn Sigurðsson.
Vinstri bakvörður: Indriði Sigurðsson.
Miðverðir: Auðun Helgason og Sölvi Geir Ottesen Jónsson.
Tengiliðir: Stefán Gíslason og Brynjar Björn Gunnarsson (fyrirliði).
Hægri kantur: Grétar Rafn Steinsson.
Vinstri kantur: Kári Árnason.
Sóknartengiliður: Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Framherji: Heiðar Helguson.