Viltu verða knattspyrnudómari?
Unglingadómaranámskeið verður haldið í október/nóvember og er að mestu leyti um heimanám að ræða.
Þátttakendur fá námsefnið sent í þrennu lagi með tölvupósti (þrjá föstudaga í röð, fyrst 28/10), en námskeiðinu lýkur síðan með prófi laugardaginn 19. nóvember.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 27. október.
Námskeiðið er fyrir alla sem verða 16 ára á almanaksárinu (fædd 1989) og eldri.
Fyrirkomulag |
Þátttakendur fá námsefnið sent í tölvupósti í þrennu lagi, 28/10, 04/11 og 11/11. Námskeiðinu lýkur síðan með prófi 19/11. |
Próf |
Prófið sjálft verður ekki þreytt í gegnum netið, heldur fer próf fram í Reykjavík og víðar ef þörf krefur. |
Þátttakendur |
Námskeiðið er fyrir alla sem verða 16 ára á almanaksárinu (fædd 1989) og eldri. |
Skráning |
Hægt er að skrá sig með tölvupósti eða í síma 510-2900 í síðasta lagi 27/10. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram: Nafn, heimilisfang, kennitala, sími, GSM, netfang, félag. |
Þátttökugjald |
kr. 3.000 |
Greiðsla |
Greiða skal námskeiðsgjaldið inn á reikning 0313-26-5155 í KB-banka fyrir 27/10 og senda staðfestingu til KSÍ (Kennitala KSÍ er 700169-3679). |
Vinsamlegast athugið!
Félög eru vinsamlegast beðin um að vanda skráningar því mikið hefur verið um að á námskeiðið hafi verið skráðir nemendur sem ætla sér aldrei að ljúka námskeiðinu. Þetta hefur haft í för með sér mikla óþarfa vinnu fyrir skrifstofu KSÍ.