• fös. 07. okt. 2005
  • Landslið

Byrjunarlið U19 karla gegn Bosníu/Hersegóvínu

EM U19 landsliða karla
em_u19_karla

Nokkrar breytingar voru gerðar á byrjunarliði U19 landsliðs karla fyrir leikinn gegn Bosníu/Hersegóvínu í undankeppni EM í dag, sem hefst kl. 09:00 að íslenskum tíma. 

Þórður Ingason kemur í markið, Haukur Páll Sigurðsson sem var í leikbanni gegn Króatíu kemur aftur inn í liðið, og Matthías Vilhjálmsson verður í sókninni.  Að auki hafa ákveðnar áherslubreytingar verið gerðar á leikskipulaginu.

Hvorugt liðið á möguleika á að komast áfram í riðlinum.

Byrjunarlið Íslands

Markvörður:  Þórður Ingason.

Hægri bakvörður:  Arnaldur Stefánsson.

Vinstri bakvörður:  Ari Freyr Skúlason.

Miðverðir:  Guðmann Þórisson og Heimir Einarsson.

Varnartengiliður:  Haukur Páll Sigurðsson.

Tengiliðir:  Theódór Elmar Bjarnason (fyrirliði) og Bjarni Þór Viðarsson.

Hægri kantur:  Arnór Smárason.

Vinstri kantur:  Rúrik Gíslason.

Framherji:  Matthías Vilhjálmsson.

Íslenski hópurinn