• mið. 05. okt. 2005
  • Landslið

Byrjunarlið U19 karla gegn Króatíu

EM U19 landsliða karla
em_u19_karla

Guðni Kjartansson, þjálfari U19 landsliðs karla, hefur valið byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Króatíu í undankeppni EM í dag. Riðillinn fer fram í Sarajevo í Bosníu og hefjast leikir dagsins kl. 13:30 að íslenskum tíma.

Breytingar hafa verið gerðar á liðinu frá 0-1 tapinu gegn Búlgaríu á mánudag. Haukur Páll Sigurðsson er í leikbanni og í hans stað í hægri bakvörð kemur Arnaldur Stefánsson. Birkir Bjarnason kemur inn í liðið í stað Arnórs Smárasonar. Birkir mun leika í stöðu sóknartengiliðs, en Heiðar Geir Júlíusson verður á hægri kanti.

Byrjunarlið Íslands

Markvörður: Atli Jónasson.

Hægri bakvörður: Arnaldur Stefánsson.

Vinstri bakvörður: Ari Freyr Skúlason.

Miðverðir: Guðmann Þórisson og Heimir Einarsson.

Tengiliðir: Theódór Elmar Bjarnason (fyrirliði) og Bjarni Þór Viðarsson.

Hægri kantur: Heiðar Geir Júlíusson.

Vinstri kantur: Gunnar Kristjánsson.

Sóknartengiliður: Birkir Bjarnason.

Framherji: Rúrik Gíslason.

Íslenski hópurinn