KSÍ sektað um hálfa milljón króna
FIFA - Alþjóða knattspyrnusambandið - hefur sektað KSÍ um 10.500 svissneska franka, eða um hálfa milljón króna, vegna fjölda áminninga sem A landslið karla fékk í tveimur leikjum í undankeppni HM 2006 í byrjun september.
Íslenska liðið hlaut fjórar áminningar í leiknum gegn Króötum á Laugardalsvelli 3. september og fimm áminningar í Búlgaríu fjórum dögum síðar.