Byrjunarlið U19 kvenna gegn Georgíu
Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari U19 landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Georgíu í undankeppni EM, en liðin mætast kl. 14:00 í dag að íslenskum tíma. Riðillinn fer fram í Bosníu/Hersegóvínu.
Fjórða liðið í riðlinum er Rússland, sem mætir heimamönnum í dag og fer sá leikur fram á sama tíma og leikur Íslands og Georgíu.
Byrjunarlið Íslands
Markvörður: Ása Dögg Aðalsteinsdóttir.
Bakverðir: Laufey Björnsdóttir og Hekla Pálmadóttir.
Miðverðir: Guðrún Erla Hilmarsdóttir og María Kristjánsdóttir.
Varnartengiliður: Elísa Pálsdóttir.
Kantmenn: Sandra Sif Magnúsdóttir og Greta Mjöll Samúelsdóttir.
Tengiliður: Lára Hafliðadóttir og Björg Bjarnadóttir.
Framherji: Katrín Ómarsdóttir.