Jafntefli gegn Svíum hjá U17 karla
U17 landslið karla gerði í morgun 2-2 jafntefli við Svía í öðrum leik sínum í undanriðli Evrópukeppninnar.
Svíar gerðu fyrsta mark leiksins á 33. mínútu og leiddu í hálfleik. Björn Jónsson jafnaði leikinn í byrjun síðari hálfleiks, en Svíar skoruðu aftur stuttu síðar. Það var svo Gylfi Þór Sigurðsson sem jafnaði leikinn aftur og lauk leiknum 2-2.
Íslenska liðið átti í fullu tré við Svíana, átti fleiri færi og hefði vel getað tryggt sér sigur, en jafntefli var niðurstaðan.
Síðasti leikur íslenska liðsins er á þriðjudag gegn Tékkum.