Jóhannes Valgeirsson dæmir í Wales
Jóhannes Valgeirsson, FIFA dómari og Gunnar Sverrir Gunnarsson, FIFA aðstoðardómari, dæma í vikunni í undankeppni Evrópumóts landsliða U17.
Riðilinn sem þeir starfa í er leikinn í Wales og dæmir Jóhannes leiki Eistlands við Sviss og Kasakstan og er fjórði dómari í leik Wales og Eistlands.
Gunnar Sverrir er aðstoðardómari í öllum þessum leikjum.