Framkvæmdastjórn UEFA fundar á Íslandi í júlí 2006
Framkvæmdastjórn UEFA ákvað á fundi sínum á miðvikudag að halda fund framkvæmdastjórnar á Íslandi 12. og 13. júlí 2006.
Stjórn UEFA fer með æðsta vald í málefnum evrópskrar knattspyrnu á milli þinga UEFA og fundar að jafnaði einu sinni í mánuði. Eins og kunnugt er situr Eggert Magnússon, formaður KSÍ, í stjórn UEFA.
Það er mikill heiður fyrir KSÍ að fá stjórn UEFA í heimsókn til Reykjavíkur á næsta ári, en fundurinn fer fram að nýlokinni úrslitakeppni HM 2006 í Þýskalandi.