Systkini í U19 landsliðum Íslands
Systkinin Björg Bjarnadóttir og Birkir Bjarnason eru í U19 landsliðum Íslands. Þau eru búsett í Stavanger í Noregi og eru börn Bjarna Sveinbjörnssonar, sem lék m.a. með Þór Akureyri og ÍBV hér á árum áður.
Björg Bjarnadóttir, sem leikur með liði Klepp, er í U19 landsliðshópi kvenna fyrir undankeppni EM í Bosníu/Hersegóvínu um næstu mánaðamót.
Birkir Bjarnason leikur með Viking FK og lék með U19 landsliði karla í vináttuleik gegn Hollandi í sumar. Hann er að auki í undirbúningshópi liðsins fyrir undankeppni EM.