Ráðstefnu KÞÍ aflýst
Undanfarin ár hefur KÞÍ (Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands) í samvinnu við KSÍ staðið fyrir ráðstefnu í tengslum við úrslitaleik VISA-bikars karla.
Því miður hefur ráðstefnunni sem vera átti um næstu helgi verið aflýst. Þess í stað mun KÞÍ í samvinnu við KSÍ standa fyrir afmælisráðstefnu 12. - 13. nóvember næstkomandi, en KÞÍ verður 35 ára þann 13. nóvember.
Ljóst er að einn fyrirlesari mun mæta erlendis frá.
Verið er að vinna í frekari dagskrá vegna ráðstefnunnar og mun dagskráin liggja fyrir fljótlega.