Garðar Örn Hinriksson dæmir í EM U17 karla
Garðar Örn Hinriksson og Sigurður Óli Þórleifsson verða að störfum í undankeppni EM U17 landsliða karla í vikunni. Þeir félagar starfa í leikjum riðils sem fram fer í Finnlandi.
Garðar Örn verður 4. dómari á viðureign Finnlands og Slóvakíu og dæmir síðan leik Finna gegn Bosníu/Hersegóvínu og leik þeirra síðarnefndu gegn Slóvakíu.
Sigurður Óli verður aðstoðardómari í öllum leikjunum.