Fylki dæmdur sigur gegn Fram
Dómstóll KSÍ hefur kveðið upp úrskurð í kærumáli Fylkis gegn Fram vegna leiks í B-liðum 3. flokks karla þar sem Fylkir taldi Fram hafa teflt fram ólöglegum leikmönnum. Dómstóllinn féllst á kröfur Fylkismanna og dæmdi þeim sigur í leiknum.