Hvöt óskar eftir þjálfara fyrir meistaraflokk
Hvöt á Blönduósi leitar eftir þjálfara fyrir meistaraflokk karla. Ráðningartími yrði frá hausti 2005 til september 2006. Búseta á Blönduósi er skilyrði yfir sumarmánuðina, þarf helst að vera spilandi leikmaður.
Umsóknarfrestur er til 25. september næstkomandi og óskast umsóknir sendar á tölvupóstfangið vignir1961@visir.is. Nánari upplýsingar hjá Vigni Björnssyni í síma 862-4587.
Stjórn knattspyrnudeildar Hvatar Blönduósi