Áfrýjunardómstóll KSÍ dæmir Val í hag
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur kveðið upp úrskurð í máli Vals gegn Fjölni. Fjölnir hafði kært Val vegna leiks í 3. flokki karla þar sem Fjölnir taldi Val hafa teflt fram ólöglegum leikmanni. Dómstóllinn féllst á kröfur Fjölnismanna og dæmdi þeim sigur í leiknum. Valsmenn áfrýjuðu og nú hefur Áfrýjunardómstóllinn hrundið fyrri dómnum. Úrslit leiksins skulu standa.