Ein breyting fyrir leikinn gegn Búlgaríu
Ein breyting hefur verið gerð á byrjunarliði Íslands frá leiknum gegn Króötum á dögunum fyrir leikinn gegn Búlgaríu í undankeppni HM 2006, en liðin mætast í Sofia í dag. Kári Árnason kemur inn í liðið fyrir Gylfa Einarsson, sem er í leikbanni.
Leikaðferðin er að grunni til sú sama og gegn Króatíu á Laugardalsvellinum, en kantmennirnir verða væntanlega látnir þétta miðjuna betur með því að leika eilítið innar á miðsvæðinu.
Leikurinn, sem hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma, er í beinni útsendingu á Sýn.
Byrjunarlið Íslands
Markvörður: Árni Gautur Arason.
Hægri bakvörður: Kristján Örn Sigurðsson.
Vinstri bakvörður: Indriði Sigurðsson
Miðverðir: Auðun Helgason og Hermann Hreiðarsson.
Tengiliðir: Brynjar Björn Gunnarsson og Stefán Gíslason.
Hægri kantur: Grétar Rafn Steinsson.
Vinstri kantur: Kári Árnason.
Sóknartengiliður: Eiður Smári Guðjohnsen (fyrirliði).
Framherji: Heiðar Helguson.