Undirbúningshópur fyrir EM U19 kvenna
Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari U19 landsliðs kvenna, hefur valið 25 leikmenn í undirbúningshóp fyrir undankeppni Evrópumóts kvenna, sem fram fer um næstu mánaðamót í Bosníu-Hersegovínu.
Átján manna hópur verður tilkynntur mánudaginn 19. september.
Í undirbúningshópnum eru leikmenn frá 12 félagsliðum, þar af einn frá norska liðinu Klepp. Breiðablik á flesta fulltrúa í undirbúningshópnum, eða átta, og Fjölnir á fjóra fulltrúa. Aðrir leikmenn koma frá Fylki, Haukum, HK, ÍA, ÍR, KR, Stjörnunni, Val og Þór.