Nokkuð breytt lið hjá U21 karla gegn Króötum
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21 landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið gegn Króötum í undankeppni EM, en liðin mætast á KR-velli í dag, föstudag, kl. 17:00.
Fjórir lykilmenn sem hafa leikið stórt hlutverk í keppninni hingað til verða ekki með eins og greint hefur verið frá hér á ksi.is, markvörðurinn Bjarni Þórður Halldórsson, fyrirliðinn Ólafur Ingi Skúlason, markahrókurinn Hannes Þorsteinn Sigurðsson og Viktor Bjarki Arnarsson.
Þeir leikmenn sem koma í þeirra stað fá þar með tækifæri til að sýna sig og sanna og festa sig í sessi í liðinu.
Aðgangur á leikinn í dag er ókeypis og er fólk hvatt til að mæta á leikinn og styðja strákana. Von er á fjölmörgun stuðningsmönnum króatíska liðsins og því mikilvægt að okkar leikmenn finni stuðning af pöllunum. Allir á völlinn!
Markvörður: Ingvar Þór Kale
Bakverðir: Steinþór Gíslason og Gunnar Þór Gunnarsson.
Miðverðir: Tryggvi Sveinn Bjarnason og Sölvi Geir Ottesen Jónsson.
Tengiliðir: Davíð Þór Viðarsson (fyrirliði) og Jónas Guðni Sævarsson.
Kantmenn: Sigmundur Kristjánsson og Emil Hallfreðsson.
Sóknartengiliður: Pálmi Rafn Pálmason.
Framherji: Hörður Sveinsson.