Króatar berjast við Svía um toppsætið
Króatar, sem verða gestir á Laugardalsvellinum á laugardag, eiga í harðri baráttu við Svía um efsta sæti riðilsins í undankeppni HM 2006. Sæti í úrslitakeppninni í Þýskalandi á næsta ári er í húfi.
Svíar leika heima á laugardag gegn Búlgörum á meðan Íslendingar og Króatar kljást í Laugardalnum. Á miðvikudag eiga Svíar síðan útileik gegn Ungverjalandi og Króatar sækja Maltverja heim.
Ekki er útlit fyrir að önnur lið blandi sér í baráttuna um efstu tvö sætin.
Ungverjar eru í 3. sæti riðilsins og Búlgarar í því 4., Íslendingar koma næstir og neðstir eru Maltverjar.