Aðeins skorað eitt mark gegn Svíum
Íslenska kvennalandsliðið mæti Svíum ytra næstkomandi sunnudag í undankeppni HM 2007. Þessi tvö lið hafa mæst 6 sinnum áður og hafa Svíar hampað sigri í öll skiptin. Íslendingar hafa skorað eitt mark en Svíar 23.
Eina markið hingað til kom í 1-3 tapi á Laugardalsvelli í ágúst 1997, í leik sem var liður í undankeppni HM 1999. Markið skoraði Sigrún Óttarsdóttir, fyrirliði íslenska liðsins.