ÍA auglýsir eftir þjálfurum
Hjá unglinganefnd knattspyrnufélags ÍA (UKÍA) eru nú lausar til umsóknar þjálfarastöður fyrir yngri flokka keppnistímabilið 2005-2006. UKÍA býður þjálfurum topp æfingaaðstöðu og m.a. er glæsilegt knattspyrnuhús að rísa.
UKÍA er fyrirmyndarfélag ÍSÍ og leitar að metnaðarfullum þjálfurum til að bætast í sinn öfluga þjálfarahóp.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á vefnum http://www.ia.is og þurfa umsóknir að berast UKÍA í síðasta lagi 28. ágúst. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar gefa:
Ólafur Jósefsson s: 898-4054 eða Magnús Óskarsson s: 893-2621