Kvennalandsliðið tekur þátt í Algarve Cup 2006
KSÍ hefur þegið boð um þátttöku fyrir A landslið kvenna á Algarve Cup 2006. Mótið, sem fer fram í Algarve í Portúgal 9. - 13. mars 2006, er árlegt og í því taka þátt öll sterkustu kvennalandslið heims. Ísland hefur tvisvar sinnum áður tekið þátt í Algarve Cup, árin 1996 og 1997.
Íslenska liðið mun leika 4 leiki á mótinu.