Dómaratríó frá Búlgaríu
Dómaratríóið í viðureign Íslands og Hvíta-Rússlands í undankeppni HM kvenna á Laugardalsvelli á sunnudag kemur frá Búlgaríu. Varadómarinn verður hins vegar íslenskur og eftirlitsmaður UEFA er norskur.
Dómari: Anelia SINABOVA
Aðstoðardómari 1: Desislava RALKOVA
Aðstoðardómari 2: Guergana VIDOVA
Varadómari: Sigurður Óli Þorleifsson
Eftirlitsmaður UEFA: Kaare LINDBOE frá Noregi