Tuttugu manna hópur valinn
Þeir Hermann Hreiðarsson og Brynjar Björn Gunnarsson verða ekki með íslenska landsliðinu í vináttuleiknum gegn Suður-Afríku næstkomandi miðvikudag. Báðir hafa þeir átt við meiðsli að stríða.
Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson völdu upphaflega 23 leikmenn, en hópurinn hefur nú verið skorinn niður í 20 leikmenn.
Brynjar Björn er meiddur og Hermann fær hvíld í landsleiknum, þar sem hann hefur verið að vinna sig út úr erfiðum meiðslum.
Helgi Valur Daníelsson var einnig í upprunalega hópnum.