Ísland leikur gegn Kólombíu 17. ágúst á Laugardalsvelli
Ísland leikur vináttulandsleik gegn landsliði Kólombíu á Laugardalsvelli þann 17. ágúst næstkomandi klukkan 20.00. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í hádeginu í höfuðstöðvum KSÍ.
Kólombía er sem stendur í 25. sæti á FIFA heimslistanum í knattspyrnu en Ísland í 92. sæti.