NM U17 karla í fimmta sinn á Íslandi
NM U17 karla hefst með fjórum leikjum í Reykjavík næstkomandi þriðjudag. Þetta er í fimmta sinn sem mótið er haldið hér á landi.
Fyrst var mótið haldið á Íslandi 1976 og var þá líkt og nú leikið í Reykjavík og nágrenni. Næst var leikið á Íslandi 1984 og var leikið víðsvegar um Norðurland og sami háttur var hafður á síðast þegar mótið var hérlendis 1998. Árið 1991 var mótið hins vegar haldið í Vestmannaeyjum.