Ekki leikið við Venesúela
Ekkert verður af fyrirhuguðum landsleik Íslands og Venesúela á Laugardalsvelli 17. ágúst. Knattspyrnusamband Venesúela tilkynnti í dag að ekkert yrði af Íslandsför þeirra og að þeir muni leika við Eqvador 17. ágúst þrátt fyrir stöðug samskipti um fyrirhugaðan leik á Laugardalsvelli þennan sama dag.