U18 karla - 2. sæti á móti í Svíþjóð
U18 landslið karla tapaði lokaleik sínum á alþjóðlegu móti í Svíþjóð fyrir Norðmönnum 2-1. Íslenska liðið komst yfir í fyrri hálfleik með marki Birkis Bjarnasonar en Norðmenn skorðuðu tvisvar í seinni hálfleik og tryggðu sér sigur í leiknum og mótinu.