U18 karla - Stórsigur á Svíum
U18 landslið karla heldur áfram að gera það gott á móti sem fram fer í Svíþjóð í þessari viku. Í gær unnu strákarnir Svía með 4 mörkum gegn einu. Fyrsta markið kom á upphafsmínútunni og var þar að verki fyrirliðinn Bjarni Þór Viðarsson. Eggert Gunnþór Jónsson bætti öðru marki við á 9. mínútu. Svíar náðu að minnka muninn fyrir hlé en í upphafi seinni hálfleiks bætti íslenska liðið við tveimur mörkum fyrst Ingólfur Ragnarsson og svo Elvar Freyr Arnþórsson. Góður sigur í höfn þar sem íslenska liðið var alltaf sterkari aðilinn í leiknum.