Leikið við Venesúela 17. ágúst og Pólland 7. október
Knattspyrnusambandið hefur samið um vináttulandsleik við landslið Venesúela á Laugardalsvelli 17. ágúst n.k. Þetta verður fyrsta viðureign þjóðanna en Venesúela er sem stendur í 9. sæti í Suður-Ameríku riðli undankeppni HM.
Þá hefur knattspyrnusambandið einnig samið um vináttulandsleik gegn Pólverjum í Varsjá 7. október. Pólverjar eru sem stendur í efsta sæti í sínum riðli í undankeppni HM.