Howard Wilkinson á leið til Íslands í ágúst
Howard Wilkinson mun vera á Íslandi dagana 10.-12.ágúst að meta UEFA A umsókn KSÍ. Howard kemur til landsins á vegum UEFA m.a. til þess að fylgjast með verklegum prófum á KSÍ VII þjálfaranámskeiðinu sem er í gangi um þessar mundir.
Howard mun svo gefa skýrslu til UEFA í framhaldinu. KSÍ vonast eftir að fá samþykki á umsóknina á fundi UEFA í september. Þegar samþykki hefur fengist getur KSÍ boðið íslenskum þjálfurum upp á UEFA A gráðu í þjálfaramenntun.