120 nýjar æfingar í Homeground æfingasafnið
Þátttakendur á KSÍ V þjálfaranámskeiðinu sem fór fram 15-17. apríl síðastliðinn hafa skilað inn 120 nýjum æfingum fyrir alla aldurshópa. Miðað var við að þjálfararnir myndu skila inn sínum uppáhaldsæfingum.
Æfingasafn KSÍ inniheldur nú rúmlega 300 æfingar frá 73 þjálfurum. Til að geta séð æfingarnar er nauðsynlegt að eiga Homeground þjálfaraforritið, en það er til sölu á skrifstofu KSÍ og kostar 5.000 krónur.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ (siggi@ksi.is).